Ég hef nokkrum sinnum verið beðin um að búa til próteinstykki svo hér er komin útgáfa af próteinríkum orkubitum sem tilvalið er að eiga í frystinum og grípa í yfir daginn. Svo er þetta tilvalið sem eftirréttur.
Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við MS - Gott í matinn.
Innihald:
- 120 gr haframjöl / 3 dl - 40 gr hnetusmjör / 2 msk - 100 gr eplamauk / 1 dl - 1 tsk vanilludropar
- 60 gr próteinduft, vanillu eða annað milt - smá salt - 150 gr frosin hindber
- 1 msk límónusafi
- 200 gr léttmál grísk jógúrt frá MS
Byrjaðu á því að taka 150 gr frosin hindber úr frystinum og setja á disk, það má líka nota fersk en þau fást sjaldan hér á íslandi svo ég nota frosin. Þau þiðna örlítið á meðan þú blandar saman haframjölinu, hnetusmjörinu, eplamaukinu, saltinu, vanilludropunum og próteinduftinu. Þú þrýstir þessu niður í kassalaga form sem er um 20 - 22 cm á breidd og lengd, gott að nota bökunarpappír undir svo það sé einfaldara að ná þessu úr forminu seinna. Þú stappar hindberin örlítið með gaffli og bætir safa af hálfri límónu út í. Þú dreifir hindberjablöndunni yfir og efst setur þú svo 200 gr af léttmál grískri jógúrt frá MS og setur svo í fyrstinn í nokkra tíma. Það er gott að láta bitana standa á borði í nokkrar mínútur áður en þeir eru borðaðir, þeir þiðna hratt.
Börnunum mínum finnst þetta mjög gott, fyrir þau geri ég alveg eins nema sleppi próteinduftinu í botninum og set aðeins minna af eplamaukinu, 70 - 80 gr duga.
Næring í 100gr
Kolvetni: 16,4 gr
Prótein: 13,1 gr
Fita: 6,9 gr
Trefjar: 3,2 gr
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó brauðstangirnar til.
Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða orkubiti.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga
Comments