top of page

Kalkúnabollur í kókos lime sósu

Þessar kalkúnabollur svo góðar og kókos lime sósan enn betri. Þær eru svolítið sterkar með ferskum chilí en það má vel sleppa ferska chillíinu ef þú ert með ung börn. Sósan er líka sterk en hægt að gera hana minna sterka með því að nota minna af red curry mauki. Ég var með brún hrísgrjón með réttinum en það er einnig hægt að hafa pasta með þessum rétti eða bankabygg.


Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Hagkaup, þar sem þú færð allt í þennan rétt.


Innihald:

600 gr kalkúnahakk

2 stk brauðsneiðar / 70 g

1 kúrbítur rifinn / 200 g

1 egg

hálft ferskt chilí (má sleppa)

2 hvítlauksrif rifin

1 tsk rifið engifer

1 msk soyasósa

2 blaðlaukar skornir smátt

börkur af lime rifinn

ferskur kóríander eftir smekk

salt og pipar


Sósan

1 msk red curry paste

1 dós létt kókosmjólk

2 hvítlauksrif rifin

2 blaðlaukar

1 tsk engifer rifið

1 msk soyasósa

1 msk akasíuhunang

2 tsk better than bouillon kjúklingakraftur

1 dl vatn

safi úr lime

1 paprika rifin þunnt


Ég kaupi kalkúnahakkið frosið og oft ef ég er á síðustu stundu þá læt ég það liggja í stofuheitu vatni þá þiðnar það hraðar. Öll innihaldsefnin eru sett í skál og blandað saman. Kúrbíturinn er rifinn smátt og vatnið kreist úr honum. Tvær brauðsneiðar ristaðar og maukaðar í blandara svo þær verði að brauðmylsnu. Því næst er öllu hrært saman í hrærivél (eða höndunum) og litlar bollur mótaðar.


Bollurnar eru settar á bökunarplötu og hitaðar við 190 gráður í 25 mínútur.


Á meðan bollurnar eru í ofninum er sósan búin til og hrísgrjónin soðin um leið. Innihaldsefnin eru sett út á pönnuna og sósan látin hitna á vægum hita í nokkrar mínútur. Í lokin er svo paprikan sett út í sósuna í þunnum sneiðum. Mér finnst best að skera hana með grænmetisskera. Þegar bollurnar eru tilbúnar eru þær svo settar út á pönnuna. Gott að setja ferskan kóríander yfir réttinn í lokinn.

Sósan er frekar þunn, hægt að þykkja hana með því að nota venjulega kókosmjólk eða þykkja með sósuþykkjara.


Næring í 100 g

Kolvetni: 6,6 g

Prótein: 10,7 g

Fita: 3,9 g

Trefjar: 0,5 g


Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða kalkúnabollur í kókos lime sósu.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó bollurnar til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

Comentarios


bottom of page