Þessi uppskrift er alveg dásamlega góð og næringarrík, hentar bæði sem aðalréttur eða sem meðlæti með kjöti eða fiski.
Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við MS - Gott í matinn.
Innihald:
2 sætar kartöflur
ostakubbur frá MS 250 g
2 - 3 msk ólífu olía
litlir tómatar
2 - 3 hvítlauksrif
fersk basilika
balsamik gljái
Magnið á mann af þessum rétti er ansi misjafnt og fer svolítið eftir stærð kartöflunnar, ef þú ert með litlar kartöflur er alveg óhætt að gera ráð fyrir einni á mann en ef þú ert með stórar gæti ein dugað fyrir tvo.
Sætu kartöflurnar eru fyrst hitaðar í ofni í um 40 mínútur við 200 gráður. Þær svo teknar út, skornar í tvennt og tekið aðeins innan úr þeim til að búa til pláss fyrir ostakubbinn. Hver helmingur er kryddaður með salti og pipar ásamt því að örlítilli ólífuolíu er hellt yfir kartöflurnar. (Það sem ég tek innan úr sætu kartöflunni er sniðugt að nota t.d. í einfaldasta fiskréttinn, þú finnur þá uppskrift hér).
Ostakubburinn er skorinn í 4 bita, en magnið í hvern helming af sætu kartöflunni fer þó algjörlega eftir smekk hvers og eins og einnig stærð kartöflunnar. Osturinn skorinn í bita og settur ofan í kartöfluna. Litlir tómatar skornir í tvennt og raðað þar ofan á. Hvítlauksrif niðurskorið eða kramið sett yfir, magn fer eftir smekk.
Kartöflurnar eru svo bakaðar aftur í um 40 mínútur við 200 gráður. Þá ætti kartaflan að vera orðin mjúk. Setjið ferska basiliku yfir hvern helming ásamt balsamik gljáa áður en rétturinn er borinn fram.
Endilega láttu mig vita ef þú prófar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga
Comments