top of page

Blómkálssúpa

Haustið er súputími, þegar ferskt íslenskt grænmeti flæðir um verslanir Hagkaups.

Það sem ég elska við súpur er hvað það er einfalt að búa þær til, grænmetið þarf bara að skera gróflega niður en svo finnst mér alltaf best að mauka súpur með töfrasprota í lokin svo þær verði silkimjúkar. Þannig er líka best að gefa börnum súpu.


Þessi blómkálssúpa er með ristuðum kjúklingabaunum sem gott er að setja ofan á hvern disk þegar súpan er borin fram.


Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Hagkaup, þar sem þú færð allt í súpuna.


Innihald:

Blómkálshaus 700 g

1 dós kjúklingabaunir

2 - 3 gulrætur

1 laukur

3 hvítlauksrif

olía

2 tsk better than bouillon kjúklingakraftur

1 L vatn

500 ml matreiðslurjómi

1 tsk turmerik krydd frá Kryddhúsinu

salt og pipar

chilli krydd, sítrónupipar og hvítlaukskrydd.

Skraut ofaná í lokin ferskt dill og sprettur frá Vaxa


Hellið vatninu af kjúklingabaununum og skolið, mér finnst gott að taka hýðið af þeim en það er smekksatriði. Setjið baunirnar í skál og þerrið þær örlítið með pappír. Hellið olíu á baunirnar og kryddið þær með hvítlaukskryddi, chilli og sítrónupipar. Setjið kjúklingabaunirnar á bökunarpappír og bakið við 180 gráður í 35 mínútur.


Blómkálshausinn sem ég var með var mjög stór svo ég notaði rétt rúmlega helminginn af honum.

Skerið blómkálið í bita og setjið á bökunarplötu, hellið olíu yfir og kryddið með salti, pipar og hvítlauk. Blómkálið sett í ofnin með kjúklingabaununum og bakað í um 30 mínútur.


Laukurinn, gulræturnar og hvítlaukurinn skorin í bita og steikt upp úr olíu í potti í nokkrar mínútur. Kryddað með salti og pipar. Turmerikið er svo sett út í pottinn ásamt vatninu og kjúklingakraftinum. Það má einnig nota grænmetiskraft í stað kjúklingakrafts. Þegar blómkálið er tilbúið úr ofninum er því hellt út í pottinn. Súpan er maukuð með töfrasprota í lokin og matreiðslurjómanum svo blandað saman við maukuðu súpuna.


Súpan borin fram með ristuðu kjúklingabaunumum og súrdeigsbrauði. Svo er afar fallegt að setja smá grænt ofan á hvern disk, ég var með ferskt dill og sprettur frá Vaxa.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó súpuna til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

Comments


bottom of page